Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Örva
  • Starfsprófun - starfsþjálfun - eftirfylgd
  • Leið út á almennan  vinnumarkað
  • Fjölbreytt þjónusta við fyrirtæki:  Pökkun - samsetningar - plastumbúðir - plastsvuntur o.fl.
 
 
Starfsemi starfsþjálfunarstaðarins Örva er tvíþætt:
 
Annars vegar stendur fötluðum einstaklingum til boða starfsprófun og starfsþjálfun. Markmið þessa hluta starfseminnar er að sem flestir geti átt þess kost að starfa á almennum vinnumarkaði að lokinni prófun og þjálfun í Örva.  Þessi þáttur starfseminnar greinir Örva frá öðrum vinnustöðum fyrir fatlaða.
 
Hins vegar veitir Örvi fyrirtækjum á almennum markaði víðtæka þjónustu. Bæði er um að ræða margskonar pökkunar og samsetningarþjónustu og einnig eru framleiddar umbúðir úr plastfilmu allt eftir óskum hvers viðskiptavinar.  Örvi framleiðir og einnota plastsvuntur sem eru, að mati þeirra sem þær nota, mun betri en þær svuntur sem fluttar eru til landsins.
 
Markmið Örva í þjónustu við fyrirtæki og aðra viðskiptavini er að veita þjónustu sem er betri en viðskiptavinurinn reiknar með. Gallalaus vara afgreidd á réttum tíma er meginvinnuregla Örva.

Örvi starfsþjálfunarstaður - Kársnesbraut 110 - 200 Kópavogur - Sími 554 3277